Header Paragraph

Máltækniþing Almannaróms - Það virkar á íslensku!

Image

Vika íslenskunnar hófst með máltækniþingi Almannaróms: Það virkar á íslensku mánudaginn 11. nóvember í Grósku.

Þar komu saman aðilar vítt og breitt úr máltækniheiminum og fögnuðu þeirri þróun sem á sér stað á sviði máltækni á íslensku. Málþingið snérist einnig mikið um mikilvægi máltækniáætlunar Íslands 2024-2026 sem miðar að því að tryggja framtíð tungumálsins í stafrænu umhverfi og salurinn var einróma um að halda þurfi vel á spöðunum og tryggja góða samvinnu.

Eins og öll tækniþróun snýst stóra máltækni verkefnið ekki síður um það hvernig og hvenær við nýtum máltæknina, máta hana við raunverulegar þarfir samfélagsins og hvaða áhrif hún hefur á menninguna.

Í máltækniáætluninni er lögð rík áhersla á notkun máltækni í menntakerfinu og hér er einmitt áhugavert að staldra við og skoða málið vel. Það þarf að styrkja lausnir sem nýtast við kennslu á íslensku sem öðru máli og innleiða máltæknilausnir sem geta stutt við menntakerfið á fjölbreyttan hátt. Það þarf allskonar lausnir fyrir allskonar notendur, það er engin ein töfralausn sem mun leysa allar áskoranir sem tengjast læsi eða inngildingu í samfélaginu.

Hugveita um inngildandi menntatækni varð til fyrr á þessu ári með það að leiðarljósi að skapa vettvang fyrir þverfaglegar umræður um tækniþróun sem nýtist í þágu inngildingastarfs í skólum. Málstofan „Menntun og máltækni mætast“ var því hluti af röð viðburða sem hugveitan stendur fyrir til þess að varpa ljósi á fjölbreytta flóru rannsókna, nýsköpunarstarfs og vöruþróunar á þessu sviði.

„Menntun og máltækni mætast“ málstofan, var haldin í samstarfi við HIM – Hugveitu um inngildandi menntatækni, Nýsköpunarstofu menntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg.

Fjölbreytt dagskrá um máltækni og menntun

Dagskráin spannaði vítt svið þar sem kynnt voru ólík verkefni sem tengjast máltækni, menntatækni, hönnunarhugsun, stefnumótun og rannsóknum á sviði læsis, fjöltyngis og inngildingar í skólastarfi.

Gestir fengu innsýn í verkefni eins og:

  •  „Íslenskur námsorðaforði í rafrænar orðabækur“: Sigríður Ólafsdóttir, PhD dósent við Menntavísindasvið HÍ, kynnti hvernig rafrænar orðabækur geta nýst í menntastarfi.
  • „Rúv.orð og fleiri verkefni tengd MEMM“: Donata Honkowicz Bukowska frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu fjallaði um þróunarverkefni sem styðja fjöltyngdar fjölskyldur við íslenskunám.
  • „Íslensk menntatæknifyrirtæki“: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir frá Samtökum Iðnaðarins ræddi lausnir og áhrif menntatæknifyrirtækja á inngildingu.
  • „Lestur gegnum hlustun“: Anna Nikulásdóttir, framkvæmdastjóri Grammateks ehf., kynnti námsefni með talgervilslestri sem ný leið til að styðja læsi.

Málstofustjóri var Hjörtur Ágústsson, deildarstjóri hjá NýMið – Nýsköpunarmiðju menntamála, og stýrði hann líflegum umræðum milli fyrirlesara og gesta.

Framtíðin í máltækni og menntun

Viðburðurinn var ekki einungis vettvangur fyrir kynningu nýjustu verkefna, heldur skapaði hann einnig tækifæri til tengslamyndunar og umræðu um hvernig máltækni og stafrænar lausnir geta haft jákvæð áhrif á menntun. Með aðkomu sérfræðinga og nýsköpunaraðila var lögð áhersla á að tengja fræðasamfélagið, skóla og atvinnulíf til að skapa raunhæfar lausnir sem nýtast nærsamfélögum og skólasamfélaginu til framtíðar.

Við vonumst eftir áframhaldandi samtali og vaxandi tengslaneti til að dýpka umræðuna um mikilvægi máltækni í þágu menntunar, sem lofar góðu fyrir frekari framþróun á þessu sviði.